Das-reefer
Ýmislegt fólk
Sundkrakkar
28.09.2006 01:03:04 / jhonad

Total and utterly KAOS

Jámm...... ég er farin að starfa sem þjálfari og um daginn var fyrsta mót tímabilsins. Þar sem ég hafði stuttan fyrirvara þá vildi ég bara bjóða þeim "bestu" í hópnum hjá mér að taka þátt því ég átti eftir að læra inná krakkana og svona og það kom í ljós að einungis einn vildi keppa! Þannig að ég mæti á mótið tilbúin að sjá um þennan eina keppanda en svo var basically bara sagt við mig "þjálfarinn er veikur, ég verð að fara og þú ert headcoach í dag. Gjörðu svo vel hér er ALLT liðið"! Ég var nottla ekki beint undirbúin en hey allt í lagi ég hugsaði "ég geri mitt besta, ef það er ekki nógu gott þá bara so be it"! En já mótið byrjar á endanum og þar sem fjörður var að halda mót í fyrsta skipti var þetta hálf brösugt hjá þeim (gengur betur næst) en típískt var að á fyrsta mótinu mínu þar sem ég varð allt í einu þjálfari þá þurftu þeir einmitt að klúðra skráningunum þannig að mínir krakkar voru að fara næstum tvöfalt fleiri greinar!!!!! allir skráðir í 3 en flestir fóru 5!!! þannig að ég var endalaust á spönum, reyna að taka tíma, segja þeim hvað á að gera, segja þeim hvernig á að gera og gera þau tilbúin og smu krakkarnir voru alltaf að koma aftur og aftur!!! Þetta var MIKIÐ VERK en það tókst! 7,9,13! og allir mættu í sínar greinar og syntu ágætlega, misgott hjá fólkinu eins og við mátti búast en þetta var reynsla, mjög lærdómsrík reynsla ég bara vona að næst þegar/ef svona gerist þá eru krakkarnir ekki í svona fjandi mörgum greinum!!!!!!!!!! En já önnur málefni........................................................................................úps þau eru engin! :S Ég er góð, allt gengur nokkuð vel og bara lífið heldur áfram eins og ekkert sé. Sjónvarpið í fokki og svona endemis vesen en þegar maður nennir ekki að gera eitthvað í því þá gerist víst ekki neitt! Heil og sæl........... andið rólega og njótið þessa seinustu loftanga af sumrinu (ef þeir eru einhverjir :() Farvel!!! DaGgA


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 23:41:31 / jhonad

hugsanapæling

Jamm og já.... skólinn byrjaður = rosa fjör!!!! eða ekki ? Nóg af verkefnum og lærdómi, það er svo sem ágætt ef maður hefur ekkert betra að gera. Ég er líka að taka 1. stig sundþjálfarans, s.s. þjálfaranámskeið sem er fínt, ekkert erfitt bara chatta á netinu og skila nokkrum verkefnum og svo eru 2 helgar þar sem maður þarf að mæta og gera eitthvað stuff. Um daginn var þjálfararáðstefna sem ég þurfti að mæta á útaf þessu og það var breskur sundþjálfari sem kom og hélt fyrirlestra. Þetta tók eiginlega alla helgina, s.s. öll helgin fór í það að hlusta á "ekta breta" tala "ekta bresku" í alltoof langan tíma en ég tók eftir því að um leið og það var töluð íslenska þá var það helmingi verra, maður vandist því að hlusta á enskuna og þá þurfti maður líka að hugsa en um leið og íslenskan heyrðist þá fór þetta allt í klessu (skrítið) :S   

 Það veldur því að ég hugsi....... ætli maður hætti einhvern tímann að hugsa á sínu eigin máli og fari að hugsa á erlendu? Fólk sem flyst úr landinu sem það ólst uppí fer það smátt og smátt að hugsa á málinu sem það talar á við annað fólk eða er íslenskan (eða þeirra mál) svona greypt inní það? Eða hugsar maður ekkert á einhverju tungumáli, bara hugsar? :S eða hugsum við á okkar eigin tungumáli og þýðum það svo ósjálfrátt yfir á tungumálið sem við þurfum að tala?  Hvernig virkar þetta eiginlega!? Ég gleymi mér svo oft í svona hugsunum og jafnvel pæli kannski of mikið í einhverju bulli en ég væri nú til í að fá að vita þetta, veit einhver þetta eða er þetta bara one aspect of the mind sem enginn hefur rannsakað? ég trúi því nú varla, með alla þessa dauðu (og kannski lifandi) sérfræðinga þá hlýtur, bara hlýtur einhver af þeim að hafa pælt í þessu! eða ég vona það, þoli ekki þegar ég fæ svona spurningar "fljúgandi" inn og fæ ekkert að vita hver lausnin eða svarið er, ég verð alltaf að fá að vita það, hvernig á ég að geta sofnað fullkomlega róleg öðruvísi en að fá svarið?

Jæja..... mér langaði bara að segja ykkur/þér/engum (ef einhverjir lesa nú þetta bull) þetta því kannski einhver langt, langt í burtu viti óvart svarið. Kannski Hjalti í Finnlandi!!! Wassup Hjalti? (p.s. ég vil fá að vita næst þegar þú kemur heim ef ég má þ.e.a.s.) en góða nótt klessurnar mínar, vonandis dreymir ykkur vel! And one thing more, who thinks I should write in english? Is it better, lousier or just not needed?     Greetings, Jóna dagga


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 20:53:01 / jhonad

"good chat"

Jæja, ég er nú á leiðinni í útilegu :D (seint í ágúst gegt) þannig að ég hef ekki mikinn tíma, mér bara langaði að skrifa eitthvað bull hérna svo það sæist að bloggið mitt sé enn virkt. En já mamma og pabbi voru að kaupa sér fellihýsi (eitthvað sem þau ætluðu aldrei að gera) og ég og gunni ákváðum það að við ætlum að kaupa tjaldvagninn þeirra, hann er svo æðislegur að ég gat bara ekki sleppt þessu tækifæri! Mér finnst þetta soldið skrítið, ég er 19 ára og ég er á svo allt öðru plani en allir aðrir sem ég þekki sem eru á mínum aldri! ég á íbúð, ég á brátt tjaldvagn og ég á 100% í 2 bílum samt er ég alltaf að röfla um efnishyggju í fólki. Málið er bara að ég sé engan tilgang í að eyða peningum í bjór og rugl þegar ég get verið að eignast hluti og sá fyrir framtíðina. Ég kann ekki við fólk sem tekur allt á lánum og ætlast svo abra til að allt gangi upp af sjálfu sér, það getur í rauninni hver sem er keypt 3 millj. kr. bíl en það er ekki hver sem er sem hefur efni á því! Fólk hugsar of lítið stundum (ekki allir en margir) afhverju að vera alltaf að kaupa einhverja þvílíkt flotta hluti ef þú átt þá ekki sjálfur heldur á tryggingafélagið þitt eða eikkað meira en milljón í bílnum? :S Ég veit að allir eiga bara ekkert pening fyrir þessu en þá er bara að kaupa það sem maður hefur efni á! Fólk lifir alltof mikið umfram efni! en önnur mál, systir mín er núna komin 7 mánuði á leið eða eikkað og það er ekki talað um neitt nema barn, barn barn, barnaföt, kerrur, bílsóll, blabla bla sem er í lagi fyri utan það að ég er orðin svo "barnveik" að ég er að farast. Mér langar svo í eitt svona, gæti ekki ímyndað mér neitt betra!!! hver veit nema það fari að koma bráðum 8) allavegana býst systir mín við því :D en já nóg komið í bili við sjáumst og heyrumst og hey hvenær á ný-ung að byrja? hvað droll er á þessu Eva?

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 18:28:32 / jhonad

Ekki flýta þér of hratt!

Vá ég hef tekið mér langt frí frá bloggi, kannski of langt! Eða var það bara betra?

En já ég var að hugsa (já, það gerist stundum) um hvað margir eru farnir að sætta sig við ýmsa hluti í lífinu í staðinn fyrir að vera ánægðir með þá. Og já það er ekki gott þegar fólk hefur ekki nógu mikinn vilja og styrk til þess að stefna á það sem þeir þrá og vilja heldur bara taka það næsta og sætta sig við það. Að mínu mati þá er maður ekki gera neinum greiða, hvorki sjálfum sér nér öðrum með því að gera svona því hvað er eiginlega markmiðið með lífinu???? Ég mundi segja að það væri að lifa því á sinn hátt, lifa því eftir því sem við viljum og eftir því sem gerir okkur hamingjusöm og aðra og já náttúrulega með tilitssemi og umhyggju fyrir þeim sem eru í kringum okkur.

En efnishyggjan er orðin svo sterk í fólki í dag, verð að eiga flottustu kærustuna, sýna vinunum að "ég er maðurinn", eiga risa hús (þó maður hafi ekki efni á því), flottan bíl sem eyðir fáránlega miklu bensíni en hvaða máli skiptir það hann er flottur! Þetta er það sem margir hugsa í dag og þegar þeir þurfa að mótmæla hlutum, standa fyrir því sem þeir trúa á og hvað þeim finnst þá geta þeir það ekki þá er bara best að þegja eða vera kurteis og láta eins og ekkert sé. eða hvað? mér finnst það ekki. Sannleikurinn er sagna bestur. Ég er samt ekkert að segja að fólk ætti endalaust að segja nákvæmlega hvað þeim finnst því orð get sært og stundum er jafnvel betra að halda því bara fyrir sig, en ekki svona oft.

Þú þarft ekki að sætta þig við hana, það er ekki gott fyrir þig né neinn annan í kringum þig, en ef þetta er það sem þú virkilega vildir, innilega 100 % þrá þá bara gott hjá þér en opnaðu augun og líttu á fólkið umhverfis þig, hvert fór það, ertu hissa? Er þetta þess virði?

Þetta vildi ég bara segja ef manneskjan kom þessari hugsun af stað skyldi nú lesa þetta, ef hann nú fattar að ég er að tala um hann, hver veit!
Ég bara þoli ekki að sjá fólk sem mér þykir vænt um láta í lægri hlut í einhverjum málum sem það á alls ekki að gera...... stundum þarf maður að hugsa um sig fyrst svo aðra (bara ekki of oft þá ertu bara helvítis egóista djöfull) en þú gerir engu greiða með að hugsa aldrei um þig fyrst!

En annars ég segi allt fínt, ég er ánægð, búin að vera með kallinum mínum í meira en ár núna (MET) og gæti varla verið ánægðari eða jú ef ég ætti betra samband við vini mína en kannski fer það allt að batna núna :D VONANDI! en ég er annars búin að fá alveg nóg af að skrifa allt þetta rugl sem erínní hausnum mínum, vildi bara koma því út og sýna fólki að það er það sem þeir ættu að gera oftar!

Tekk fyrir mig! Toodles


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2005 01:06:22 / jhonad

Tilgangslaust röfl

Ég veit EKKERT hvað ég ætti að skrifa um núna en einhvern veginn hef ég þessa gífurlegu löngun til þess að skrifa um eitthvað! kannski ættí ég bara að segja "hæ krakkar dagurinn min fór svona............ oki alltí lagi bless heyrumst seinna" en mér finnst það of lélegt og leiðinlegt rusl, afhverju ætti fólk að vilja lesa um hvenær e´g borðaði mat, staðreyndina um að ég svaf yfir mig þegar ég átti að fara austur eða hvenær ég fór á klósettið. Ekki hef ég áhuga á því að lesa um það hjá einhverjum öðrum, reyndar hef ég ekki einu sinni áhuga á því eða nenni alls ekki að rita það niður! Nú er mánudaguR. Ég fer út á Fimmtudaginn........ það verður ojj ferðaleg... bíða 4 tíma í kaupmannahöfn þar sem ég hef farið milljón sinnum og ekkert spennó að gera þar, en það er einn bjartur punktur við þetta Fannar eða a.k.a. xThräshmasterx verður í fríhöfninni á íslandi á sama tíma og ég :D En þessi ferð verður ERFIÐ :S  en hey það er ekkert gaman af lífinu ef allt er gegt auðvelt!

Athyglisleysi fer í taugarnar á mér, ég þoli ekki þegar fólk sem ég er með finnst eikkað betra að sitja í tölvunni og hlusta á útvarpið heldur en að' eyða tímanum með mér og gefa mér "smá" athygli. Og þá er ég ekki að meina með að fólkið þurfi eikkað að stara á mig 24/7 og vera endalaust að tala við mig en bara einn lítill hlutur sem lætur mann vita að fólkið veit að maður er til, bara hvað sem er gefur manni góða tilfinningu. Æi vá þetta er ennþá meiri steypa heldur en allt hitt til samans, fyrigefið!


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2005 01:05:15 / jhonad

High on Life!

Vó í dag var ég soldið hress og langaði að skrifa þetta þvílíka posi blogg svo byrjaði ég að skrifa og þetta byrjaði ágætlega. Síðan var ég komin yfir í eikkað sundrugldrasl tal og ég varð meira og meira pirruð, því meira sem ég skrifaði því meira varð ég pirruð og þetta "posi-blogg" var bara orðið af einhverri "ræðu" um óþolandi persónur og hve það væri í rauninni leiðinlegt að æfa sund. Það er skrítið hvernig maður fer að því að pirra sjálfan sig, í rauninni er það bara þú sem getur pirrað sjálfan þig, þú ræður hvernig þú tekur hlutunum og hvaða fólk umgengst, maður segir samt alltaf "þessi er svo pirrandi", "hún er að pirra mig viljandi", "djöfull er hann leiðinlegur....urrrrr" og kennir fólkinu um hve stuttur kveikiþráðurinn hjá okkur er. Ég veit það sjálf að í svo mörgum tilvikum er það mér að kenna hve fjandi pirruð og brjáluð ég verð, ég hugsa um gömul atvik og gamla hluti og það eykur á pirringinn, ekki er það manneskjan á móti mér sem segir mér að hugsa þetta eða taka þessu sem leiðindum, það er engum nema mér að kenna þegar ég ræðst á hurðina og brýt hana, kannski er það einhver sem "ýtir" mér út í það en á endanum er það ákvörðunin mín hvað ég geri! Ég fór að hugsa um þetta því ég var bara að átta mig á því hve marga hluti ég læt fara í taugarnar á mér, og ég virðist alltaf bregðast við á rangan hátt því heiftin ólgar innan með mér og ég get ekki tamið hana, ég þarf að finna mér eikkað sem gefur mér fulla útrás því ég er alltof pirruð manneskja, ég verð að læra að umbera fólk, verð að sætta mig við það að það eru ekki allir eins og e´g og það eru ekki allir sem vilja vita skoðunina mína á málunum, sumir sem kalla skoðanir mínar bara nöldur og væl en ekki réttmætar skoðanir, í rauninni á ég ekki að sætta mig við það en að vera pirrast útaf því er ekki rétta leiðin!

En skemmtilegri málefni eru það að mér hefur liðið mjög vel undanfarna daga, flestu fólki sem ég umgengst líður vel.... ég hef reyndar vanrækt vini mína soldið, fyrigefið, en svona er að hafa nóg að gera og þurfa að mæta á æfingar. Ég ætla ekki að ræða um sund því þá pirrast ég bara aftur og ég er bara hálf fegin að þetta blogg sem ég skrifaði í dag hafi "klikkað", verið fegin að hafa ekki þurft að lesa reiði-rusl, þó þetta sé rusl!!! Ég er í góðum málum núna..... held ég :P ég er loksins á þeim stað sem ég Á að vera á..... allavegana að mínu mati (fyrir utan að ég bý enn heima hjá mömmu og pabba) ég er loksins sátt með stöðu mína og loksins farin að bókstaflega hlakka til framtíðarinnar! Ég hafði eiginlega aldrei upplifað það að sakna einhvers.... nú hef ég gert það.... vó hvað það er mögnuð tilfinning, geta vart beðið eftir að hitta einhvern og vilja eyða hverri mínútu sem þú getur með manneskjunni...... I'm sick, can anyone cure me'?

Ég hef ekki mikinn áhuga og mikinn tíma til þess að skrifa mikið meira þannig að þið verðið bara að láta þessi orð duga ykkur í bili.......

"Franco Un-American"

I never thought about the universe, it made me feel small
Never thought about the problems of this planet at all
Global warming, radio-active sites
Imperialistic wrongs and animal rights! No!

Why think of all the bad things when life is so good?
Why help with an 'am' when there's always a 'could'?
Let the whales worry about the poisons in the sea
Outside of California, it's foreign policy

I don't want changes, I have no reactions
Your dilemmas are my distractions

That's no way to go, Franco Un-American
No way to go, Franco Un-American
No way to go, Franco Un-American
No way to go, Franco, Franco Un-American

I never looked around, never second-guessed
Then I read some Howard Zinn now I'm always depressed
And now I can't sleep from years of apathy
All because I read a little Noam Chomsky

I'm eating vegetation, 'cause of Fast Food Nation
I'm wearing uncomfortable shoes 'cause of globalization
I'm watching Michael Moore expose the awful truth
I'm listening to Public Enemy and Reagan Youth

I see no world peace 'cause of zealous armed forces
I eat no breath-mints 'cause their from de-hoofed horses
Now I can't believe; what an absolute failure
The president's laughing 'cause we voted for Nader

That's no way to go, Franco Un-American
No way to go, Franco Un-American
No way to go, Franco Un-American
Where can we go, Franco Un-American

I want to move north and be a Canadian
Or hang down low with the nice Australians
I don't want to be another 'I-don't-care-ican'
What are we gonna do Franco, Franco Un-American

 

NOFX




» 88 hafa sagt sína skoðun

24.04.2005 13:36:29 / jhonad

Summer sing-a-long

Afhverju er það að þegar allt virðist gott og lífið frábært og maður á kannski t.d. frábæran dag að allt getur farið í klessu, bara útaf einum hlut eða jafnvel einni manneskju. Endalaus vandamál, ein stór flækja sem virðist vera óleysanleg í augum reiðinnar og enginn tilbúinn að ræða málin og losa spottana. Þegar fólk neitar að hlusta þá er maður svo hjálparlaus, það er svo erfitt að laga allt þegar fólk er kannski ekki tilbúið í að láta hlutina lagast, ég persónulega get ekki sætt mig við það að geta ekki bjargað hlutunum, hvað þá þegar mér er ekki einu sinni gefið færi á því. Það er hræðilegt að vita um manneskju sem líður illa eða er í vandræðum en vegna reiðis, órökhugsunar og óöruggis og jafnvel haturs er manni ekki gefið tækifæri, stundum er alveg hægt að laga eða a.m.k. bæta hlutina bara með samskiptum.... samskipti í reiði eru ekkert sniðug en þegar fólk verður sárt þá er ekki hægt að hunsa það bara og fara heim að sofa. Eða það er allavegana mín skoðun, veit ekki um aðra enda er ég líka ekki að segja skoðanir annarra hérna, þeir mega samt hinsvegar mótmæla mér að vild í "skoðunum"! Ég ætla ekkert að fara nánar út í þetta "umhugsunarefni", því ekki er það mitt að segja frá öllu.

 Sumarið komið!!!!!! LOKSINS! Sumarið er það besta sem ég get hugsað mér núna, hef svo sannarlega þurft á því að halda að fá gleðina, sólina og léttleikann í líf mitt aftur, engar þykkar peysur og skólatöskur, engin nagladekk og salt á bílnum. Vá hvað ég ætla að vona að þetta eigi eftir að gera öllum gott! Ég hef trú á sumrinu, það getur gert ótrúlega hluti, komið gleði inn í alla og allt (kannski ekki alveg alla og allt en..) og dagarnir verða betri hressari og léttari. Enginn þunglyndislegur grámi yfir borginni (nema kannski af helvítis mengunni) og útilegur, tónleikar og ferðalög eru í uppsiglingu og margir að lifa lífinu og skemmta sér, gera það sem þeir vilja og bara hafa gaman af því að vera til, Carpe Diem!

 Reyndar eru margir sme ekki nýta tímann og þeir la´ta bara tímann fljúga hjá á einhvern leiðinlega hátt og vil ég ekki óska neinum því að þeir þurfi að eyða sumrinu sínu þannig. En þú hvernig þú hagar tíma þínum og þú skapar umhverfið þitt umhverfið þitt, mundu það.

En umhugsunarefnin mín eru upprunnin í bili þannig að ég segi bara bless og njótið sumarsins, Skipulaggning er vinur dauðans!

"The Sing-Along Summer-Song"

 I wish it was summer and the sun would shine i'd have nothing to do but waste my time we could hang out riding our bikes i'd shave your head and you could help me with my spikes... but it isnt summer and its cold ourside im overworked i aint got notime to do all the things we talked about... im getting my dreads done youre growing your hair long nothings what it used to be but i guess ill have the memories to carry them with me ... autumn winter spring... ill be holding on to yesterday the summer came and went away too fast


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2005 00:39:48 / jhonad

DUPLICITY

Tvöfalt fólk..... er hræðilegt, hvernig stendur á því að fólk getur ekki bara sagt álit sitt og skoðanir sínar beint út! Onei það er auðvitað ekki hægt! Það er miklu betra að byrgja reiði sína og pirring inni og segja bara "jájá fínt er" ! Þá nefnilega lagast allt og verður að einni góðri sögu með farsælum endi!!! Ójá!

Stundum er samt gott að láta ekki allt flakka og segja allar sínar skoðanir en það eru alltof margir sem láta sínar skoðanir bara eiga sig og segir það sem það heldur að það "eigi" að segja! Ég hinsvegar segi yfirleitt mínar skoðanir blákalt áfram og stundum get ég verið ansi hörð í því og oft lendi ég í því að hafa eiginlega sagt of mikið! En ég segi það að ef fólk getur ekki tekið því að skoðunum þeirra sé andmælt þá er trú þeirra á því að skoðun þeirra sé "rétt" fyrir þá, ekki nógu sterk! Ég elska það hinsvegar þegar einhverjir andmæla skoðunum mínum (ekki fannar) því það er svo gaman að rökræða, ég get "rökrætt" fram og aftur endalaust, en ekki við Fannar þá tapa ég oft :( Andri er fínn í þessu, can\'t lose there :P

Lygar, hvað er málið með það........ afhverju finnst fólki svo gaman að hegða sér óheiðarlega og ljúga! Það hafa allir logið einhvern tímann og ég ætla alls ekki að halda því fram að ég hafi aldrei logið því það væri lygi! En það sem ég skil ekki er hvernig fólk getur horft í augun á manni og logið og ekki fengið samviskubit! Þegar ég lýg fæ ég yfirleitt svo yfirdrífandi samviskubit að það bókstaflega nagar mig að innan. Hvað þá með fólk sem hefur gaman af því að ljúga upp á annað fólk, fólk sem það kannski þekkir ekki vel og veit ekkert hvað það er að segja, þessvegna umgengst ég lítið stelpur, hópur af stelpum með hormónaflæðið á fullu er eitt það hræðilegasta sem ég veit um! Siðleysi og skemmdarfíkni í fólki í dag er alveg hræðileg! Fariðið og finniði ykkur eikkað annað að gera og annað að tala um heldur en annað fólk, lítið í eigin spegil og litið hann bleikan! Stay True!!!

Ég hef eiginlega bara ekkert meira að segja, held að ég sé búin að eyða nóg af ykkar tíma í að lesið ruglið mitt þannig að farvel!............... Always Be Good, Always Stay Clean, Always Have Fun!!!!

Anthem of Positivity- Good Clean Fun

Be Positively Positive,No matter what you do, for all the hardships life can bring a smile will see you through, Be Positively Positive, and life will be a dream with sisterhood and brotherhood uniting all the sea!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2005 22:22:13 / jhonad

hvað er klukkan? uppfinning eða kannski leiðinlegur fjandans hlutur?

Á svona dögum vildi ég gæti gufað bara upp í tómarúm og forðast tímann. Sloppið við að upplifa daginn. Tilveran getur verið svo leiðingjörn stundum og tilgangslaus og tíminn bara liðið framhjá eins og þegar maður horfir á sekúnduvísinn færast nær og nær 12, tikk takk, tikk takk.

Ég þoli ekki þegar ég virðist vera sú eina sem er óánægð með að gera ekki neitt og sú eina sem finnur sér ekkert að gera, talandi um lítið ýmundarafl. Ég virðist ekki geta liðið vel ein með sjálfri mér inni í herbergi með ekkert fyrir stafni, ég gæti verið að teikna eða eitthvað þannig en einhvern veginn þegar manni líður illa þá getur maður það ekki, það endar bara útí það að eitt strik er á blaðinu og maður starir útí loftið.:| Stundum finnst mér ég vera svo utan við allt, passa ekki inní! Og ég er ekki að meina passa ekki inn í hóp af einhverjum krökkum heldur bara passa ekki inn í gjörvalt umhverfið mitt! Passa ekki inn í herbergið mitt, húsið mitt, fjölskylduna mína, landsliðið, sundið, í rauninni það eina sem ég vil gera í lífinu er..........að lifa lífinu! ekki á neinn sérstakan hátt ekki með einhvern pening í vösunum heldur bara á minn hátt eins og ég vil sama hvort ég eigi krónu í sokkaskúffunni minni eða 326 milljónir í rúmdýnunni. Með læknisgráðu eða vinnandi í bókabúð doesn't seem to make any difference. Ég virðist ekki hafa nærri því sömu skoðanir á hlutunum og allir í fjölskyldunni minni, allir virðast stefna að peningunum, flottu kærustunni, stóru gervibrjóstunum og áfenginu. Og kannski 100.000 króna hundinum líka. En það er einmitt það sem ég skil ekki, veitir það manni hamingju út lífið? :S

Ef ég ætti ekki bíl þá veit ég ekki hvað ég mundi gera, ég mundi ekki hafa neinn samastað! Ég reyndar veit að ég gæti alveg farið til vina minna en einhvern veginn hef ég bara engann áhuga á því, mér langar bara að hugsa stundum og slaka á og það geri ég þegar ég er að keyra, góð undankomuleið en aðeins undankomuleið í stuttan tíma!

Vó þetta blogg var ekekrt smá niðurdrepandi og þunglyndislegt! sem er frekar ólíkt me´r mundi ég segja, en hey hvað veit ég svo sem :lol: En annars er mér búið' að líða nokkuð yndislega seinustu daga, frábærlega reyndar, ég hef getað drullað me´r út á hverju einasta kvöldi núna og skemmt mér mjög vel og bara liðið mjög vel, mér hefur fundist eins og ég hef getað verið ég sjálf alveg endalaust allan daginn út og inn sem er bara ein besta tilfinning sem ég veit um!!! Ég elska manneskjur sem maður getur algjörlega í einu ög öllu verið maður sjálfur nálægt þeim, ég þekki ekki margar svoleiðis manneskjur sem ég get umgengist þannig og ég uppgötvaði eina í viðbót um daginn, manneskju sem ég haft lítið samband við undanfarið og þetta lífgaði mig bara við, yndislegt :D en já nóg af kjaftæði! Farvel 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2005 23:29:30 / jhonad

HEIMSKULEGT

Í dag er miðvikudagur, nr eikkað, janúar, 2005! eitt ár liðið, en venjulegt!

Um daginn fór ég í skólann, það var erfitt, en já þarna sat ég með músíkina í eyrunum og þar sem ég var í Efnafræði og skildi ekki rass hvað ég átti að vera að gera ákvað ég að lesa kaflann sem var kafli 1. Þarna lá ég næstum í stólnum að lesa hluti sem ég botnaði ekkert í og svo kom þessi eina setning sem sló mig algjörlega útaf laginu, ég gat ekkert gert, bara starði út í buskann að pæla í þessu og ég gat ekki hætt að hugsa um þessa setningu! Ég botnaði ekkert í afhverju þetta var í þessari kennslubók en já setningin var svo hljóðandi ,,Það sem skiptir máli er að hafa ákveðna og skýra viðmiðun hvort sem hún er raunhæf eða ekki!" ótrúlegt hvað sumt getur haft skrítin áhrif á mann og truflað alla hugsun!

Ég er með hræðilegt skap, ef ég spring þá verð ég brjáluð og ef einhver nálægt ´mér er að segja við mig að róa mig þá gerir það mig bara enn´þá brjálaðari! ég HATA fólk sem segir mér að róa mig, þegar ég er reið þá vil ég fá að segja mitt og svo er það búið! ég verð ekkert fúl út í fólkið lengi eftir! ef fólk hlustaði oftar á mig þá mundi ég sjaldnar verða reið svo mikið er víst! Ég er farin að læra að hafa smá stjórn á skapi mínu ég hef allavegana ekki kýlt neinn lengi :D allavegana ekki fast ;) fyrir utan í sumar!

Þreyta, þreyta og þreyta er venjan hjá mér þessa dagana, hef stundum enga orku, ekki einu sinni til þess að hlusta á músík, þó það krefjst engarar orku en þegar maður sofnar þegar maður kemur heim þá er soldið erfitt að vera að hlusta! Ég er búin að mæta á æfingu eftir æfingu og mér finnst það soldið skondið að ég nenni því en svona er það þegar maður fær þörf fyrir það að gera eitthvað!

Ég stefni stefnulaus inní framtíðina glórulaus! nútíð er ekki til! pælið í því! Margar margar pælingar!

Ég fékk 10 í sundi! ég er undrandi hissa og hlessa! Í gær datt peningur úr fætinum mínum, mér fannst það frábært! 1 króna, ég er rík! af gleði!

Hápunktur dagsins í dag var þegar ég vissi eitthvað, sem var allur dagurinn! allur dagurinn heill hápunktur! Það er samt ekkert afrek að vita eikkað, t.d. ef e´g veit hvar ég er er kominn einn hlutur sem ég veit! sniðugt er það ekki!

Æi vá þetta er allt klessa! rusl blogg, ætla samt að ýta á staðfesta takkann góða nótt elskurnar mínar allar, svífið í draumaheimum ykkar og njótið þess meðan það endist! ELSKA drauma! lifi draumar! ég vaknaði hlægjandi í dag, það var gaman!

Ég var búin að gleyma ó hve Against me væri fjandi góð músík, nú ætla ég ALDREI að gleyma því aftur!

Against ME!

"We Did It All For Don"

Please tell me why we couldn’t stay
Don’t let this feeling ever go away
Let this memory forever be inside of me
Through every hour of every day
It’s with the company of these friends
That we drove on through the night
Behind the wheel of armageddon
We’re gonna force ourselves to live
Thankful it’s hurt more than we’ve ever felt
It’s just our means to an end

And honestly we were armed with our best intentions
Maybe those intentions alone
are just enough to get us anywhere but here
In the middle of america
Six cylinders will take us further than any president
The same promises that we forgot the last time
There’s no difference between staying and a bullet in the head
Maybe it’s gonna come from the radio
Or the next 8 hour day
Driving to the next town
A collect call home to your best friend
We are the company we keep
We could live off of dumpsters if we have to
Sell our blood by the pint to make rent
This kind of dignity doesn’t come easy
But you’ll never find it for sale


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2004 18:56:38 / jhonad

Langanir, langanir, langanir

Ég er að deyja úr löngunum! ekki einhverjum kynferðislegum löngunum eða neitt þannig heldur bara, mér langar í eitthvað og ég get ekki hætt að hugsa um það eins og t.d. mér langaði í DEVITO'S pizzu. Ég var að farast úr löngun í pizzu og ég gat varla ráðið við mig, í dag gafst ég upp og keyrði niður á DEVITO'S kl 5 og fékk mér pizzu, uhhhmm hvað það var gott!!!

Nú langgar mér að gera eitthvað sem veldur því að me´r líði vel. Í fyrsta lagi langar mér að breyta herberginu mínu. Mér langar að skapa réttan anda í því sem hentar mér, mér langar í svona "feng shui" herbergi. Mér langar að fylla það af "listaverkum", ekki einhverjum svona klassa listaverkum heldur einhverju svona "rusli" sem örugglega abra ég mundi segja að væri list, einhverju sem lætur MÉR líða vel. Vá þegar ég les þetta þá finnst mér eins og ég sé svooo eigingjörn en er ég það? :S Ætti mitt herbergi ekki að vera eitthvað sem lætur mér líða vel, griðarstaður fyrir mig. Nú dettur mér í hug einhvern segja "en hvað með börnin í afríku sem væru fegin að hafa bara eitthvað herbergi", að það mundi nægja þeim, afhverju nægir það mér þá ekki? Kannski af því........æi ég veit ekki, þetta er laust til túlkunar hvers og eins.+

Mér langar ótrúlega að vera læknir út í Afríku eða einhverju af þessum 3 heims löndum (er það ekki annars kallað það?) og hjálpa konum og börnum og mönnum líka :D, mig dreymdi einmitt þetta um daginn og það endaði með því að ég ættleiddi nokkur börn og þau fóru til íslands og þeim var svo kalt! Ég mundi örugglega aldrei getað unnið svona vinnu, ég mundi vilja taka öll börnin með mér heim! svo byggi ég útí Afríku í einhverju húsi út í sveit með kringum 10 börn, sum hvít og sum svört, bæði börn sem ég hafði ættleidd og svo líka börn sem ég hafði eignast, hvílíkur draumur, en eitthvað sem er mjög ólíklegt að eigi eftir að gerast! :$ en hey hver veit hvað framtíðin ber í skauti!

Mér langar að saga rúmið mitt, saga fæturnar af svo engir draugar geti legið undir rúminu mínu, þetta las ég í einhverri bók og mig hefur langað að gera þetta síðan! En þar sem ég ætla að vera hagsýn ætla ég bara að taka rúmið í sundur og setja dýnuna á gólfið, það er fínt!! Flestir mundu segja að myrkfælni og svona hræðsla væru bara barnaskapur og maður ætti bara að horfast í augu við óttann og byrja að haga sér samkvæmt aldri sínum, vera þroskaður. Ég er hinsvegar ekki sammála því, fínt að vera hræddur við eitthvað, ef það aftrar manni hins vegar ekki frá því að lifa lífi sínu "eðlilega"!!! Það er enginn með enga hræðslu! tvöföld neitun gengur ekki upp, enginn með enga!-doesn't feel right.

Vá þetta er búið að vera lengra heldur en það átti að vera, allt Fannari að kenna!!! Enda á texta frá NOFX, Theeee causeeeee úúúú :D

"The Cause"

Isn't for the money
Nor is it for the fun
It's a plan, a scam, a diagram
It's for the benefit of everyone
You gotta have a little respect
Subterranean ideals
Traditional of neglect
Reflect on how it would make you feel
The cause- we're just doing it for the cause

No it isn't for the fortune, it isn't for the fame
It's a scheme, a dream, a barterine
We want everyone to think the same
Because you know what you know is right
And you feel what you can't ignore
And you try so hard to point the blame
A shame- what are we doin' this for?

The cause- we're just doing it for the cause
The cause- we're just doing it for the cause

Open, your eyes, don't trust, these lies
What are we doin' this for?
The cause- we're just doing it for the cause
The cause- we're just doing it for the cause


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2004 20:06:49 / jhonad

Líðum í gegnum daginn......endalaust.......!

Ég sit núna uppi í rúmi og velti fyrir mér deginum, þessi dagur fór algjörlega til spillis. Ég vaknaði í morgun, auðvitað of seint þar sem ég slekk alltaf á klukkunni minni ÁÐUR en ég vakna, svo dreif ég mig í fötin og hljóp út í bíl, skafa, skafa, skafa!

Svo byrjar þetta yndilega próf, fullt af verkefnum (reyndar bara 8 verkefni) en þetta tók LANGAN tíma og mmaður varð bara "dauður" eftir þetta! Helvítis rugl sem er svo tilgangslaust!

Ég þyrfti síðan að drífa mig niðrí TR með henni mömmu og það var ekkert gaman. Hún talaði og talaði og sagði einhverja helvítis vitleysu því hún skilur aldrei hvað fólk er að tala um, svo reiðist hún þegar ég fer að útskýra fyrir henni hvvað manneskjan er að reyna að segja! 8| Svo um leið og við' komum út þá byrja öskrin, mér langaði mest til þess að klessa á til þess að þagga niður í henni!!!!

Ég fer heim, horfi á nágranna og leggst uppí rúm, ohhh hvað ég var þreytt, ég ákvað að lúlla aðeins sem varð reyndar að 5 tíma svefni :S vakna kl 7 fer niur og ét og það eina "skemmtilega" sem gerðist í dag kom útúr munninum hennar mömmu. Hún var að væla því ég sat niðrí stofu í gær, með lokaðar hurðir að læra og ég hafði músík á, mest allan tímann var NOFX í spilaranum eða Let it Burn, hún kallaði þetta öskur og vældi yfir þessu við hvert mögulega tækifæri, þegar ég fór fram heyrði ég EKKI NEITT í músíkinni en hún virtist heyra mjög vel í henni, hún var að trufla sjónvarpsglápið hennar! en já hún sagði "Þú mátt ekki vera þarna, taktu bækurnar þínar, ég er ekki að biðja neitt, ég er að banna þér maður heyrir svo mikið í þessari fjandans músík, bara af því ÞETTA ER ÞANNIG MÚSÍK, hún fer í taugarnar á mér, ég heyri smá í ´því"! Mamma mín sem heyrir ekki þegar ég stend inní eldhúsi og öskra eins og lífið leysir og hún á ganginum hefur töfralega fengið þessa ofur heyrn sem veldur því að hún heyrir altt sem hún vill ekki heyra! Er það ekki annars alltaf þannig!

Nú er klukkan bara allt í einu orðin 8 og ég sit og skrifa þetta blogg sem er eitt af því sem telst vera tímasóun! Þoli ekki svona daga sem konur(maður) bara einhvern veginn líður bara í gegnum. Vona bara að kvöldið erði ekki eins og tilgangslaus og þessi dagur virtist vera.+

Við sjáumst og heyrumst og allt þetta.............takk fyrir að lesa ruslið! þ.e.a.s. ef ´þið náuð að skrafla ykkur í gegnum þennan leiðinlega texta!

Bouncin Souls

"Bryan's Lament"

Sat back and I light a cigarette
These pictures of you in my head
I feel like shit and my eyes are burning
But still, I just cant go to bed

Whiskey nights and missed mornings
Still these pictures of you in my head
I drown myself ten feet deep tonight
Remembering things we said

Moments get stuck in my brain
In my blue skies and my rain
You are so beautiful to me
I can't wait to see you again

Here comes, that old pain again
I came so far, but ended up at the start
and every new day starts with the sunrise
and pictures of you in my eyes


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.12.2004 23:23:58 / jhonad

Enn meira bugl, stoppar það aldrei???

Ný síða, ég þurfti að fá mér nýja síðu. Útaf hlutum sem margir mundu örugglega segja að væri bull og bara heimska en það eru ekki allir sem geta skilið allt! margir litlir hlutir geta orðið að risamáli, risamáli sem er næstum ógerlegt að útskýra að fullu, hvernig útskýrir maður tilfinningar! veit einhver það?

En nú standa prófin yfir, tilgangslausu prófin sem eiga að sýna hve gáfaður maður er í hverju fagi! Mér finnst það rugl, ekkert af þessum hundruðituga prófa sem e´g hef farið í yfir lífstíðina hefur endurspeglað hve góð ég get verið í þessu fagi, frekar bara hvort ég hef lesið eða ekki. Stundum hefur prófið sýnt andstöðuna á því hve mikið ég hef lesið. T.d. í 10 bekk gerði ég ekki neitt í stærðfræði og fékk svona 7,5, ég lærði ekekrt gerði svona 20 dæmi :o en svo þegar samræmdu prófin komu´þá lærði ég eitt HEILT kvöld fyrir stærðfræðina (sem var mikið fyrir mig) og e´g fékk 4,5 eða 5,5. Ég man það ekki! Samkvæmt þessu hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þetta var reiknivélinni minni að kenna :D

Í dag fór ég í Efnafræði, kl 7.20 um morguninn fattaði ég að ég a´tti eftir 2 heila kafla sem við vorum víst búin að fara í en ég var ekki buin að mæta í neitt af þeim tímum, þannig að e´g var bara algjörlega "clueless" um þessa kafla. mér gekk svona lala. Stærðfræði á morgun, ég ætla nú ekki að tala ikið um hana, þetta blogg er búin að vera svoldið mikil "upptalning" á hltum sem er leiðinlegt að lesa!!! en já stærðfræði e´g er búin að læra í næstum allan dag eftir að ég vaknaði :klikk: 4 kaflar, 8-12 af hreinu ógeði, vissuð þið að Innfeldi er oft kallað punktmargfeldi eða depilmargfeldi???? Nei ég hélt ekki! Vitað þið í raun hvað innfeldi er? Ekki ég heldur!

Helgin var frábær, föstudagur var fínn en laugardagurinn var toppurinn á ísjakanum, Fannar, Höski og Gunni komu til mín, fengum okkur DEVITO'S PIZZU :D sem er best! svo hengum við niðrí stofu, hlustuðum á vinyl, svo endaði með að við fórum að sofa kl 10 og var vaknað kl 12, 2 tíma svefn, fínt!

Sunnudeginum var eytt í bugl og vitleysu (já bugl með géi) svo var endað með því að opna efnafræði bókina, hún var opin allt kvöldið en það var samt ekkert lesið úr henni! ég dýrka vini mína! þó svo að einn vinur minn hafi kannski ekki endilega viljað þekkja mig í stuttan tíma á laugardagsnóttinni eða allavegana óskað þess að hann hefði ekki verið þarna á þessari stundu! 8| en allt fór vel, vona bara að vinur minn sé ekki skaddaður fyrir lífstíð ;)

Enda á þessum "fallegu" orðum frá NOFX. Stay proud and stay in the fashion baby, or else....!

"Lori Meyers"

Lori Meyers used to live upstairs Our parents had been friends years Almost every afternoon we'd play forbidden games At nine years old there's no such thing (as shame) It wasn't recognition of her face, what brough me back was a familiar mark As it flashed across the screen I bought some magazines, some video tape scenes Incriminating acts, I felt that I could save her "Who are you to tell me how to live my life? You think I sell my body; I merely sell my time. I ain't no Cinderella, I ain't waitin' for no prince, To save me in fact until just now I was doin' just fine. And on and on.." "I know what degregation feels like I felt it on the floor at the factory Where I worked long before, I took control now I answer to me The 50K I make this year will go anywhere I please Where's the problem?"

NOFX!!!!!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun